Eftirvænting. Ísland 18. des

Sermon  •  Submitted
0 ratings
· 15 views
Notes
Transcript
Sermon Tone Analysis
A
D
F
J
S
Emotion
A
C
T
Language
O
C
E
A
E
Social
View more →

Sálmar

Upphafssálmur: Sjá himins opnast hlið (88)
Fyrir ritningarlestur: Heyrið óma hátt um jörð (807 ný sálmabók)
Fyrir prédikun: Guðs kristni í heimi. (81)
Eftir trúarjátninguna:
Í Betlehem er barn oss fætt
Mitt einatt hvarflar hjarta (KFUM 32)
Þakkarfórn: Fögur er foldin (96)
Lokasálmur: Heims um ból. (82)
Þú borgin litla Betlehem

Kollekta

P: Drottinn Guð, himneski Faðir, þú hefur opinberað oss að himinn og jörð munu undir lok líða, og að vér á hinsta degi eigum að rísa upp frá dauðum og safnast frammi fyrir dómssæti þínu. Hald oss með þínum Heilaga Anda í sannri trú, svo að hörtu vor þyngist hvorki af svalli né drykkju, heldur vaki þau og biðji, og að vér meigum umflýja alt það sem koma mun, og standast frammi fyrir Mannsyninum: Honum, sem með þér og Heilögum anda lifir og ríkir, sannur Guð um aldir alda.
A: Amen

Ritningarlestur

Fyrri ritningarlestur þessa Drottins dags er að finna í spádómsbók Jesaja, kafla 40, vesum 9–11:
Isaiah 40:9–11 IS1981
9 Stíg upp á hátt fjall, þú Síon fagnaðarboði! Hef upp raust þína kröftuglega, þú Jerúsalem fagnaðarboði! Hef upp raustina, óttast eigi, seg borgunum í Júda: "Sjá, Guð yðar kemur!" 10 Sjá, hinn alvaldi Drottinn kemur sem hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða. Sjá, endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum. 11 Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga, taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.
L: Þannig hljómar hið heilaga orð.
S: Guði sé þakkargjörð.
L: Síðari ritningarlestur þessa Drottins dags er að finna í Öðru bréfi Péturs, fyrsta kafla, versum 19–21:
2 Peter 1:19–21 IS1981
19 Enn þá áreiðanlegra er oss því nú hið spámannlega orð. Og það er rétt af yður að gefa gaum að því eins og ljósi, sem skín á myrkum stað, þangað til dagur ljómar og morgunstjarna rennur upp í hjörtum yðar. 20 Vitið það umfram allt, að enginn þýðir neinn spádóm Ritningarinnar af sjálfum sér. 21 Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.
L: Þannig hljómar hið heilaga orð.
S: Dýrð sé þér Drottinn, því þú hefur orð eilífs lífs! Hvert annað ættum vér að fara!

Guðspjall

P: Guðspjallið skrifar guðspjallamaðurinn Lúkas
S: Guði sé lof og dýrð fyrir sinn gleðilega boðskap.
Luke 3:1–18 IS1981
1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu, en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus bróðir hans í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, 2 í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni. 3 Og hann fór um alla Jórdanbyggð og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda, 4 eins og ritað er í bók Jesaja spámanns: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans.5 Öll gil skulu fyllast, öll fell og hálsar lægjast. Krókar skulu verða beinir og óvegir sléttar götur.6 Og allir menn munu sjá hjálpræði Guðs. 7 Við mannfjöldann, sem fór út til að skírast af honum, sagði hann: "Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði? 8 Berið þá ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.' Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. 9 Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað." 10 Mannfjöldinn spurði hann: "Hvað eigum vér þá að gjöra?" 11 En hann svaraði þeim: "Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá er matföng hefur." 12 Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: "Meistari, hvað eigum vér að gjöra?" 13 En hann sagði við þá: "Heimtið ekki meira en fyrir yður er lagt." 14 Hermenn spurðu hann einnig: "En hvað eigum vér að gjöra?" Hann sagði við þá: "Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið yður nægja mála yðar." 15 Nú var eftirvænting vakin hjá lýðnum, og allir voru að hugsa með sjálfum sér, hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. 16 En Jóhannes svaraði öllum og sagði: "Ég skíri yður með vatni, en sá kemur, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi. 17 Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi." 18 Með mörgu öðru áminnti hann og flutti lýðnum fagnaðarboðin.
P: Þannig hljómar hið heilaga guðspjall.
S: Lof sé þér Kristur.

Prédikun

Fyrsti kafli Lúkasarguðspjalls segir okkur frá fæðingu Jóhannesar skírara, einungis hálfu ári á undan Jesú. Engillinn sem talar við Sakaría föður Jóhannesar segir frá hlutverki hans, jafnvel áður en hann er getinn. Þess vegna segir Sakaría við fæðinug hans:
Luke 1:76–77 IS1981
76 Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta, því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans77 og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu, sem er fyrirgefning synda þeirra.
Svo líða mörg ár og Jóhannes dvelst í eyðimörkinni norðaustan við Jerúsalem. Samkvæmt upplýsingunum í upphafi kaflans er hægt að reikna út að Jóhannes hefur verið um þrítugt þegar eftir honum var tekið, og fólk fór að flykkjast út í eyðimörkina til þess að heyra prédikanir hans.
Það sem okkur er sagt um boðskapinn, er í stuttu máli að Jóhannes prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar syndanna, en einnig að hann flutti fólkinu fagnaðarboðin. Síðan er okkur gefið sýnishorn af því hvernig sá boðskapur hljómaði.
Það má segja að við sjáum þrjú megin atriði í boðskapi Jóhannesar. Í fyrsta lagi boðaði Jóhannes skírari að dómur Guðs yfir mönnunum nálgaðist, og öllum mönnum ber að snúa sér til hans. Ekki bara heiðingjunum, heldur einnig gyðingum. Þeir sem svo skírðust iðrunarskírn Jóhannesar voru þeir sem trúðu boðskapnum og höfðu tekið við honum.
Í öðru lagi kenndi Jóhannes þeim hvernig guðrækið líferni lítur út í verki. Það er að segja að Jóhannes kennir þeim að bera ávexti iðrunarinnar.
Í þriðja lagi flutti Jóhannes þeim fagnaðarboðskapinn um þann sem á eftir honum skyldi koma, og skíra með Heilögum Anda og eldi.
Við skulum líta á þessi þrjú atriði.

Dómsboðskapurinn

Fyrst er það dómsboðskapurinn.
Jóhannes krefur lýðinn um iðrun, því dómur Guðs er yfirvoandi. Ekki bara er hann dómur yfir heiðingjunum, heldur einnig yfir Guðs eigin lýð — gyðingunum. Eins og Jóhannes segir:
Luke 3:8 IS1981
8 Berið þá ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.' Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum.
Síðar í ræðu sinni talar hann um komu Krists til dóms og segir þá um hann:
Luke 3:17 IS1981
17 Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi."
Myndlíkingin sem Jóhannes notar hér, var vel þekkt úr kornyrkju Ísraelsþjóðar. Kornið var borið upp á litla hæð og þar var því hellt á jörðina. Því næst voru dráttardýr látin draga þreskisleða yfir kornið, sem braut hismið af. Að lokum var beðið eftir svolítilli golu, og þá var korninu varpað upp í loftið með varpskóflu. Þungur kjarni kornsins datt fljótt aftur til jarðar, en vindurinn feykti hisminu í burtu. Á sama hátt mun Kristur koma og greina okkur mennina í tvo hópa. Annar hópurinn verður eins og hið verðmæta korn, sem safnað er saman og sett í hlöður. Hinn hópurinn verður eins og hismið, sem ekki er til neins nýtt, heldur er það ónýtur afgangur sem vindurinn feykur í burtu. Þessi kornyrkjumaður mun þó ganga skrefi lengur, því hann mun safna hisminu saman og síðan brenna það í óslökkvandi eldi.
Dómsboðskapur Jóhannesar er því ógnvekjandi, og á erindi til okkar allra. Hann kallar okkur til að kannast við syndir okkar: Ekki bara syndir í hugsunum, orðum og gjörðum, heldur líka þann syndugleika sem býr í okkur og veldur þessu öllu.
Iðrunarskírn Jóhannesar var þess til merkis, að þeir sem létu skírast könnuðust við bæði syndir sínar og syndugleika sinn. En iðrun er þó meira en að kannst við syndir sínar, því það eitt og sér veitir okkur ekki hjálpræði.
Iðurinin krefst þess líka að við heyrum fagnaðarboðin um Kristu og trúm þeim. Ætli það hafi ekki verið einmitt þess vegna sem lýðurinn spurði sig hvort Jóhannes gæti verið Messías. En áður en við komum að því, skulum við skða kennslu Jóhannesar.

Kennslan

Því Jóhannes gaf lýðnum ákveðin dæmi um það hvernig iðrun á að koma fram í verki. Í fyrsta lagi kemur hún fram í kærleika til náungans. Jóhannes hvetur hlustendur sína til að nýta eigur sínar til að hjálpa náunganum. Sá sem á tvær flíkur deili með þeim sem enga á. Sá sem á nóg af mat, deili með þeim sem engann mat hefur.
Við getum þá spurt okkur hvernig við eigum að koma fram við betlara, því þeir eru jafnvel til hér í Reykjavík. Er rétt að gefa þeim sem biður um smá klink? Stundum réttlætum við hörku okkar með því að segja við okkur sjálf að hann eða hún notar þetta bara til að kaupa eiturlyf eða áfengi. Það má auðvitað vera, en er það á ábyrgð okkar að ala þá upp og hafa vit fyrir þeim? Getum við ekki auðsýnt öðrum miskunn þótt svo að okkur gruni að sú miskunn verði misnotuð? Er það ekki einmitt það sem Kristur gerir fyrir okkur?
Jóhannes svarar síðan spurningum um það hvernig ákeðnir einstaklingar geta sýnt iðrun í verki. Það er mjög áhugavert að Jóhannes krefur hvorki tollheimtumenninna um að hætta tollheimtu sinni né hermennina um að hætta hermennsku sinni. Hins vegar krefur hann þá um að sinna starfi sínu heiðarlega, og misnota ekki stöðu sína til óheiðarlegs gróða. Tollheimtumönnum er ekki heimilt að krefja auka álags fyrir eigin vasa. Eins er hermönnum ekki heimilt að nýta mátt sinn til að bera rangar ásakanir á fólk, í því skyni að krefja þau um mútur.
Það er ekki erfitt að nota orð Jóhannesar á þau störf sem unnin eru í nútíma samfélagi. Bæði stjórnendur og starfsfólk á að vinna vinnu sína samviskusamlega og heiðarlega. Við eigum að borga þann skatt sem samfélagið krefur af okkur, mæta í vinnu á réttum tíma, koma fram við starfsfólk, sem og yfirmenn af þeirri virðingu sem þeir eiga rétt á. Starfsfólk í vaktavinnu, sem og verktakar eiga að skrifa rétta tímalista, og ekki bæta við tímum til að fá meira kaup. Bankamenn eiga að vinna fyrir viðskiptavinni sína, og ekki leggja á þá óréttláta vexti og gjöld. Þannig mætti lengi telja, en boðskapurinn er í öllum tilvikum sá að við eigum að koma fram af heiðarleika og virðingu, sem auðvitað stjórnast af því að við eigum að elska náunga okkar eins og okkur sjálf.
Þessi boðskapur fjallar um það hvernig við eigum að haga lífi okkar, og hann er ekki flókinn.

Fagnaðarboðin

Að lokum flytur Jóhannes lýðnum líka fagnaðarboðskapinn. Með orðum Jóhannesar hljómar hann þannig:
Luke 3:16 IS1981
16 En Jóhannes svaraði öllum og sagði: "Ég skíri yður með vatni, en sá kemur, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi.
Fólkið sem kom saman til að heyra boðskap Jóhannesar þekkti sennilega gamla testamentið mjög vel, og myndmálið um skóþvenginn hefur þá beint huganum til síðasta kafla Rutarbókar. Þar er sagt frá samskiptum tveggja manna, sem báðir voru svokallaðir lausnarmenn. Það þýddi að á þeim lá skylda til að kaupa aftur akur ekkjunnar Naomi, sem seldur hafði verið í hallæri. Lausnarmaðurinn átti líka að sjá fyrir ekkjunni Rut.
Venga þessarrar kvaðar vildi sá sem fyrstur var í röðinni ekki leys akurinn, og lét hinn síðari, Bóas að nafni, taka það að sér. Samskiptum þeirra lýkur með þessum orðum í 4. kafla Rutarbókar:
Ruth 4:7–8 IS1981
7 Það var fyrrum siður í Ísrael við endurlausn og skipti, er menn vildu staðfesta allar gjörðir, að annar tók af sér skóinn og fékk hinum. Þetta var vottfesting í Ísrael. 8 Þá sagði lausnarmaðurinn við Bóas: "Kaup þú það handa þér!" og tók af sér skóinn.
Þegar Jóhannes talar um þann sem koma á, segir hann að hann sé ekki einu sinni verðugur þess að beygja sig niður og leysa skóþveng hans. Hvað þá að taka við skónum og verða lausnarmaður Ísraelsþjóðar. Því fer fjarri. Það er sá sem eftir kemur sem er lausnarmaður þjóðarinnar.
Og þessi lausnarmaður mun skíra lýð sinn með heilögum Anda og eldi. Hann mun leysa þjónina frá syndum þeirra og kaupa hana aftur til Guðs. Það felst nefnilega í því að hann er lausnarmaður þjóðarinnar.

Lokaorð

Þettta er síðari hluti iðrunarinnar. Fyrri hlutinn var að kannast við syndir sínar og syndugleik sinn. Það höfum við gert í dag með því að játa syndir okkar frammi fyrir Guði. Siðari hlutinn er það að hafa eftirvæntingu, þ.e.a.s trú og truast til lausnarmannsins, sem hefur nú þegar keypt okkur aftur úr greipum syndarinnar. Hann lagði líf sitt í sölurnar fyrir okkur.
Rétt eins og lýðurinn sem bar eftirvæntingu um Krist eftir að hafa heyrt boðskap Jóhannesar, berum einnig við sömu eftirvæntingu. Ólíkt samtímafólki Jóhannesar, höfum við hinsvegar söguna alla, og vitum hver sá er, sem er Jóhannesi máttugri. Við þekkjum söguna alla um Krist, sem kom til okkar, klæddist holdi og blóði og gerðist maður, til þess að geta borið syndir okkar á krossinum.
Við skulum því áfram halda aðventuna, í réttri merkingu orðsins, sem er koma eða endurkoma. Það er að segja, við skulum halda aðventuna í eftirvæntingunni um endurkomu Kristus.
Dýrð sé Guði, Föður og Syni og Heilögum Anda. Svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen.
Related Media
See more
Related Sermons
See more
Earn an accredited degree from Redemption Seminary with Logos.