Eilífur þríeinn Guð
Sermon • Submitted • Presented
0 ratings
· 6 viewsNotes
Transcript
title: "Eilífur þríeinn Guð"
author: Sakarias Ingolfsson
affiliation: Den lutherske kirke i Norge
date: 2026-05-31
lang: "is"
### Upphafsorð
### Upphafsorð
Gleðilega hátíð. Í dag er sunnudagur sem heitir Þrenningarhátíð, eða Trínítatis. Dagur Heilagrar þrenningar. Kirkja Krists tilbiður ekki einungis Guð Föður, eins og rabbínisminn reynir að gera. Við takmörkum okkur ekki við að tilbiðja einungis Soninn, Jesú Krist. Og við einblímum ekki á Heilagan anda, eins og tími kirkjunnar væri einungis tími Heilags anda. Þvert á móti veitum við starfi Heilags anda viðtöku, þegar hann bendir okkur á, og gefur okkur hlutdeild í fórn Jesú Krists. Og fyrir Jesú Krist, komum við til föðurins. Við trúum á einn Guð, sem er í senn Faðirinn, Sonurinn og Heilagur Andi. kirkjufaðirinn _Cyprianus_ kallaði þennan leyndardóm Heilaga þrenningu.
Nú eru margir sem reynt hafa að útskýra hvernig þessi leyndardómur getur átt sér stað, eins og að hægt sé að gera fulla grein fyrir hinu óskiljanlega. Því miður, þegar menn hafa reynt að búa til pottþétt kerfi, hefur það endað með því að þeir beyja frá kristinni trú, og enda annarsstaðar. Á fjórðu öld var prestur að nafni Aríus, sem leysti þennan leyndardóm með því að segja að Jesús væri ekki að sönnu Guð, einungis guðdómlegur. Villa hans er kölluð Aríusarvilla, og einkennir hún meðal annars trú Votta Jehóva og Mormóna, en einnig trú Múslima, og jafnvel margra gyðinga. Að ákveðnu leyti er Aríusarvilla einkenni allra sem segja að Jesús hafi að sönnu verið góður maður, en algerlega misskilinn.
Leyndardómur heilagrar þrenningar er þemma sunnudagsins í dag. Við munum sjá það í ritningarlestrunum og í sálmum dagsins.
Ísak spilar á píanóið í dag.
### Sálmar
### Sálmar
* **Inngöngusálmur:** Gakk inn í Herrans helgidóm (214a) https://kirkjan.is/salmabok/gakk-inn-i-herrans-helgidom-223
* **Dýrðarsálmur:** Dýrð í hæstum hæðum (4) https://kirkjan.is/salmabok/dyrd-i-haestum-haedum-472
* **Sálmur fyrir prédikun:** Drottin Guð, þitt dýra nafnið skæra (11b) https://kirkjan.is/salmabok/drottinn-gud-thitt-dyra-nafnid-471a
* **Sálmur eftir trúarjátningu:** Sé Drottni lof og dýrð (1) https://kirkjan.is/salmabok/se-drottni-lof-og-dyrd-446
* **Sálmur og þakkarfórn:** (228) https://kirkjan.is/salmabok/tunga-min-af-hjarta-hljodi-297
* **Lokasálmur:** Mikli Drottinn dýrð sé þér (29) https://kirkjan.is/salmabok/mikli-drottinn-dyrd-se-ther-216
### Kollekta
### Kollekta
Almáttugi, eilífi Guð, sem hefur gefið þjónum þínum að játa sanna trú og þekkja þannig dýrð eilífrar þrenningar og tilbiðja einingu hátignar
þinnar: Vér biðjum þig að gera oss staðföst í þessari trú og varðveita oss gegn öllu böli. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda. um aldir alda.
### Ritningarlestur
### Ritningarlestur
**L:** Fyrri ritningarlestur þessa Drottins dags er að finna í fyrstu Mósebók, 18. kafla, versum 1-5
> Abraham sat í tjalddyrum sínum í miðdegishitanum í Mamrelundi er Drottinn birtist honum. Honum varð litið upp og stóðu þá þrír menn frammi fyrir honum. Er hann sá þá hljóp hann til móts við þá úr tjalddyrunum, laut til jarðar og mælti:
> „Herra minn, hafi ég fundið náð fyrir augum þínum þá gakk ekki fram hjá þjóni þínum. Mættum við sækja svolítið vatn að þið getið þvegið fætur ykkar og hvílst undir trénu? Ég ætla að ná í matarbita svo að þið getið styrkt ykkur áður en þið haldið lengra úr því að þið fóruð um hjá þjóni ykkar.“
> Þeir svöruðu: „Gott og vel, gerðu eins og þú hefur sagt.“
**L:** Þannig hljóðar hið heilaga orð.
**S: Guði sé þakkargjörð.**
**L:** Síðari ritningarlestur þessa Drottins dags er að finna í 2. Korintubréfi, 13. kafla, versum 11-13
> Að öðru leyti, bræður mínir og systur, verið glöð. Verið fullkomin, áminnið hvert annað, verið samhuga, lifið saman í friði. Þá mun Guð kærleikans og friðarins vera með ykkur. Heilsið hvert öðru með heilögum kossi. Allir heilagir biðja að heilsa ykkur. Náðin Drottins Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum.
**L:** Þannig hljóðar hið heilaga orð.
**S: Dýrð sé þér Drottinn, því þú hefur orð eilífs lífs! Hvert annað ættum vér að fara!**
### Guðspjall
### Guðspjall
**P:** Guðspjallið skrifar guðspjallamaðurinn Matteus
**S: Guði sé lof og dýrð fyrir sinn gleðilega boðskap**
**P:** Guðspjall þessa Drottins dags er að finna í Matteusarguðspjalli 11. kafla, versum 25-27
> Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt. Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.
**P:** Þannig hljóðar hið heilaga guðspjall
**S: Lof sé þér Kristur**
### Prédikun
### Prédikun
#### I Mennirnir þrír í fyrri ritningarlestri
#### I Mennirnir þrír í fyrri ritningarlestri
Í fyrri ritningarlestrinum í dag heyrðum við byrjunina á sögu sem við finnum í fyrstu Mósebók. Sagan segir frá Abraham, forföður Ísraelsþjóðar. Guð hafði birst honum í heimalandi sínu, í Úr í Kaldeu. Það er handan við norðurströnd við Persaflóa, í núverandi Írak. Guð bauð honum að fara burt frá heimalandi sínu, því hann ætlaði að gefa honum nýtt heimaland.
Þetta land skyldi byggjast af afkomendum Abrahams, jafnvel þótt maðurinn og kona hans Sara voru barnlaus. Þar að auki voru þau engin unglömb. Sara var 65 ár, og Abraham heilum tíu árum eldri. Vonin um að eignast afkomanda var sennilega löngu farin. Engu að síður, hlustaði Abraham á orð Guðs, og tók þessum góðu fréttum fagnandi. Hann trúði Guði, þ.e. hann treysti því Guð myndi efna orð sín, og hélt af stað í áttina að fyrirheitna landinu, ásamt konu sinni Söru, og nokkrum öðrum samferðamönnum. Fyrst ferðuðust þau til svæðis sem heitir Harran, rétt sunnan við núverandi Tyrkland, og settust þar að um stund, meðan faðir Abrahams, Tara, var á lífi. Síðan héldu þau áfram til fyrirheitna landsins, Kaanan, þar sem Ísrael er í dag.
En árin liðu, og hinn fyrirheitni afkomandi lét bíða eftir sér. Heilum 24 árum eftir að Abraham og Sara fóru frá heimalandi sínu, voru þau enn að bíða. Abraham var þá orðinn 99 ára, og Sara kona hans 89. Það var ekki lengur allskostar auðvelt að halda í vonina. Það var líka tilgangurinn með þessari löngu bið. Hin náttúrulega von átti að hverfa alveg, og gera afkomandann algerlega háðan kraftaverki. Þannig var fæðing afkomandans fyrirmynd annars kraftaverks, öldum síðar, nefnilega þungun Maríu meyjar, og fæðingu frelsarans.
En nú var tíminn farinn að nálgast þegar biðin var á enda. Við heyrðum að Drottinn birtist Abraham þegar hann sat í tjalddyrum sínum. Abraham sá þrjá menn sem hann ber kennsl á. Hann kallar þá Herra eða Drottinn. Kannski er það bara einn þeirra, sem talar við hann, en það virðist vera raunin þegar þeir halda áfram í áttina að borgunum Sódómu og Gómorru. Hvort heldur sem er, er það rödd Drottins sem talar við Abraham. Hann segir Abraham að hann muni koma aftur að ári, og þá mun afkomandinn loks vera fæddur. Sara hlær að því, og þá minnir maðurinn hana á að ekkert er Drottni ómögulegt. Þegar drengurinn svo fæðist, ári síðar, fær hann nafnið Ísak, sem einmitt þýðir hlátur.
Kirkjan hefur lengið baslað við það hverjir þessir menn voru. Af hverju eru þeir þrír? Og af hverju talar einn þeirra með rödd Drottins? Fyrir kirkjufeðrunum var svarið einfaldlega þetta: Að það var Sonur Guðs sem birtist Abraham, jafnvel löngu fyrir fæðingu Jesú í Betlehem. Kirkjan játar nefnilega það, að Sonur Guðs sé eilífur, enda er hann Guð. Hann hefur alltaf verið til. Fæðing hans var ekki uppaf hans, heldur var það atvik í sögunni, þegar Sonur Guðs klæddist holdi og blóði og gerðist maður eins og við. En fyrir þann tíma, gat hann samt sem áður opinberað sig, jafnvel með þessum hætti, og gert það mögulegt fyrir Abraham að tala við Guð, andlit til andlits.
#### II Sonurinn er ímynd Föðurins
#### II Sonurinn er ímynd Föðurins
Biblían segir það nefnilega klárum orðum, að við mennirnir höfum gert uppreisn gegn Guði, og þannig unnið skaða á sjálfum okkur. Sá skaði er það slæmur, að við getum ekki nálgast Guð, án þess að tortímast. Það er eins og ef við reyndum að nálgast sólina. Því nær sem við kæmumst, því heiftarlegri yrði hitinn, og að lokum myndum við brenna upp. Eins væri það að reyna að nálgast heilagan Guð. Þá er það ekk hiti eða geislun sem myndi tortíma okkur, heldur heilagleiki Guðs.
Því segir Jesús okkur í guðspjalli dagsins: „Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.“
Eina leiðin til að þekkja Guð Föður á himnum, er að að þekkja son hans, Jesú Krist, sem kom til jarðar og gerðist maður. Þetta eru ekki nýjar fréttir, sem koma með nýja testamentinu, heldur hefur það alltaf verið þannig. Það sjáum við í sögunni um Abraham og mennina þrjá. Guð birtist Abraham með ákveðnu móti, í líkingu manns. Hér sjáum við skuggan af frelsaranum, jafnvel áður en hann fæddist.
Þannig segir nýja testamentið okkur það að Jesús sé hin sanna ímynd föðurins á himnum. Páll skrifar í bréfi sínu til Kólossumanna «Því að í honum býr öll fylling Guðdómsins líkamlega. Og í honum, sem er höfuð hvers konar tignar og valds, hafið þér öðlast hlutdeild í þessari fyllingu.» (#Col2:9-1)
En þá gætum við sagt: Já, það er nú gott, allavega fyrir postula Jesú Krists, sem fylgtu honum í Galíleu, og fyrir alla þá sem hittu hann, hlustuðu á hann, og sáu kraftverk hans. En hvað hvað hjálpar það okkur, sem lifum eftir Uppstigningardag, þegar Jesús steig upp til himna, og situr við hægri hönd Guðs Föður almáttugs? Ekki getum ferðast til Ísrael til að hitta Jesú þar. Hann er stiginn upp til himna!
### III Heilagur andi bendir okkur á soninn
### III Heilagur andi bendir okkur á soninn
Það er satt að við getum ekki gert eins og postularnir. En ef við hugsum aðeins um það, þá eru það góðar fréttir. Það væri ekki gott ef við þyrftum að standa í biðröð til að geta talað við Jesú, sennilega árum saman, þótt hann gæfi hverjum og einum ekki meira en eina mínútu. Og hvernig ætti maður þá að byggja vináttu við hann? Nei, það væri ekki hægt.
Jesús vissi þetta auðvitað þegar hann talaði við postula sína við síðustu kvöldmáltíðina. Og hann vissi líka hvernig þetta skyldi vera. Í 16. kafla Jóhannesarguðspjalls segir Jesús: „Ég segi yður sannleikann: Það er til góðs fyrir yður að ég fari burt, því ef ég fer ekki, kemur hjálparinn ekki til yðuar. En ef ég fer, sendi ég hann til yðar.“ (#Joh16:7)
Eftir uppstigningardag var Heilagur andi sendur yfir postulana. Það er heilagur andi sem tengir okkur við Soninn, Jesú Krist, og hann sem tengir okkur við Föðurinn. Jesús segir einnig þetta um Heilagan Anda: „Hann mun gjöra mig dýrlegan, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. Allt sem faðirinn á, er mitt. Því sagði ég, að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.“ (#Joh16:14-15)
Einnig í dag getum við þekkt Jesú, eins og postular hans gerðu, en við þekkjum hann fyrir starf Heilags Anda. Og Heilagur Andi starfar gegnum orð hans og sakramenti. Það þýðir að við, sem viljum fylgja Jesú í dag, og viljum eignast samband við hann, gerum það með því að þekkja hann gegnum orð hans, sem eru rituð hér í heilagri ritningu. Þetta er staðurinn þar sem Jesús mætir þér. Við fylgjum honum, rétt eins og Abraham, með því að trúa orðum hans. Þetta er staðurinn.
#### Lokaorð
#### Lokaorð
Við mennirnir viljum gjarna byggja okkar eigin leiðir til Guðs. Stunum reynum við siðferðilegu leiðina, með því að reyna að vera nógu hrein, til að torstímast ekki af heilagleika hans. Stundum reynum við leið leyndardómanna og andleika, með því að reyna að íhuga myndir af honum, þar til andleg leið opnast. Aðrir reyna leið þekkigarinnar og spekinnar: Ef við bara vitum nógu mikið, þá getum við nálgast Guð.
En Guð sjálfur gefur okkur leiðina: Heilagur Andi talar til okkar gegnum orð Guðs, sem ritað er í Heilagri ritningu, talað til okkar í guðsþjónustunni, og með táknmáli efnanna í brauði, víni, og í vatni skírnarinnar. En þetta er staðurinn þar sem hann byrjar, í orði Guðs. Þannig tengir Heilagur Andi okkur við Son Guðs Jesú Krist. Og Sonur Guðs opinberar Föðurinn fyrir okkur, þ.e. skapara himins og jarðar. Við þekkjum hann með því að þekkja Jesú Krist. Guð kemur til okkar með sínum hætti: Og hann hefur gert það þannig, að hann bera alla ábyrgðina sjálfur. Það er hann sem kemur til okkar, ekki við til hans.
Leyfið mér að lokum að segja þetta svona: Allt þetta hefur Guð gert fyrir þig. Til þess að þú, sem situr hér í Friðrikskapellu á þessum fallega sunnudegi, getir átt samfélag við heilagan Guð. Hann hefur útúið þessa leið, til að þú megir þekkja hann, rétt eins og hann nú þegar þekkir þig. Því skulum við gera eins og Abraham, og játa saman að við trúum orði hans.
**P:** Dýrð sé Guði, Föður og Syni og Heilögum Anda. Svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen.
**P:** Játum saman trú okkar.
### Tilkynningar eftir messulok
### Tilkynningar eftir messulok
Biblíulestur 9. júní á Zoom
Lesin guðsþjónusta 14. júní kl 11
Messa 28. júní kl 11
Aðild að söfnuði
Smá video á eftir
