4seþ
Sermon • Submitted
0 ratings
· 19 viewsNotes
Transcript
Sermon Tone Analysis
A
D
F
J
S
Emotion
A
C
T
Language
O
C
E
A
E
Social
Sálmar
Sálmar
Upphafssálmur: Þér lof vil ég ljóða (535)
Fyrir ritningarlestur: ó Herra Jesús hjá oss ver (297)
Fyrir prédikun: Þótt æði stormar heims um haf (571)
Þakkarfórn: Heilagi Guð á himni og jörð (538)
Lokasálmur: Meðan, Jesús minn ég lifi (377)
Tilkynningar fyrir messu
Tilkynningar fyrir messu
Upphafssálmur: Þér lof vil ég ljóða (535)
Kollekta
Kollekta
Drottinn Guð, þú sem allra best veist í hvílíkum háska og voða við erum stödd, að í breyskleika okkar getum við ekki staðið staðföst sérlegrar hjálpar þinnar. Við biðjum þig: Veit okkur hjálp þína, og styrk okkur til lífs og sálar, svo að við með þolinmæði getum borið og staðist þær þjáningar sem við meigum líða vegna synda okkar, fyrir Drottinn vorn Jesú Krist, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, sannur Guð um aldir alda. Amen.
Ritningarlestur
Ritningarlestur
Fyrir ritningarlestur: ó Herra Jesús hjá oss ver (297)
Fyrri ritningarlestur þessa Drottins dags er að finna í spádómsbók Jesaja, kafla 40, versum 25-31;.
25 Við hvern viljið þér samlíkja mér, að ég sé honum jafn? segir Hinn heilagi. 26 Hefjið upp augu yðar til hæða og litist um: Hver hefir skapað stjörnurnar? Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar með nafni. Sökum mikilleiks kraftar hans og af því að hann er voldugur að afli verður einskis þeirra vant. 27 Hví segir þú þá svo, Jakobsætt, og hví mælir þú þá svo, Ísrael: "Hagur minn er hulinn fyrir Drottni, og réttur minn er genginn úr höndum Guði mínum?" 28 Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg. 29 Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. 30 Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, 31 en þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.
L: Þannig hljómar hið heilaga orð.
S: Guði sé þakkargjörð.
L: Síðari ritningarlestur þessa Drottins dags er að finna í...
8 Skuldið ekki neinum neitt, nema það eitt að elska hver annan, því að sá, sem elskar náunga sinn, hefur uppfyllt lögmálið. 9 Boðorðin: "Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast," og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: "Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig." 10 Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.
L: Þannig hljómar hið heilaga orð.
S: Dýrð sé þér Drottinn, því þú hefur orð eilífs lífs! Hvert annað ættum vér að fara!
Guðspjall
Guðspjall
P: Guðspjallið skrifar guðspjallamaðurinn...
S: Guði sé lof og dýrð fyrir sinn gleðilega boðskap.
23 Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. 24 Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. 25 Þeir fara til, vekja hann og segja: "Herra, bjarga þú, vér förumst." 26 Hann sagði við þá: "Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?" Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn. 27 Mennirnir undruðust og sögðu: "Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum."
P: Þannig hljómar hið heilaga guðspjall.
S: Lof sé þér Kristur.
Prédikun
Prédikun
Fyrir prédikun: Þótt æði stormar heims um haf (571)
Þegar stormur… Þegar stormur stríður… geysar allt um kring: Ég veikur er, en vísst mig ber, hans voldug hönd á friðarströnd.
Samkvæmt sálmabók barnanna er höfundur barnasöngsins ókunnur, og því ekki hægt að spyrja hvernig söngurinn kom til. Ég tel samt sem áður nokkuð örugga ágiskun að höfundur hafi haft Guðspjall þessa sunnudags í huga.
Söngurinn minnir að mörgu leyti á ákveðna myndræna túlkun, sem er vinsæl hjá meira en einni grein kristninnar: Við getum fyrst nefnt þá, sem framar öllu leita að leiðbeiningum til að bæta líferni sitt með stöðugum framförum. Þá er ég að tala um þann hóp sem horfir á Biblíuna og les hana fyrst og fremst sem leiðbeiningabók fyrir lífið. Enska orðið BIBLE hefur verið breytt í skammstöfun fyrir “Basic Instructions Before Leaving Earth,” sem á íslensku mætti útleggjast Grundvallarleiðbeiningar fyrir brottför frá jörðu.
Eins eru hinir frjálslyndu, sem ekki trúa því að sagan hafi raunverulega átt sér stað, og eiga þá ekki annan kost en að leita að merkingu sem ekki er háð sögulegu gildi atburðanna sem hér eiga sér stað. Þeir enda þá gjarnan á sama stað og hinir fyrrnefndu, og sagan nýtist þeim fyrst og fremst sem ein af dæmiögum Jesú.
Nú er auðvitað ekkert að því að sækja innblástur og styrk í þessa sögu þegar maður gengur gegnum storma lífsins, og margir hafa líka lukkast vel í því. Þá óskar maður þess helst að gera að sem lærisveinarnir virðast ekki hafa getað, þ.e.a.s að leggja allt sitt traust á Jesú.
Enda er það rétt! Er það ekki einmitt þetta sem fyrsta boðorðið kennir okkur:
Þú skalt ekki aðra guði hafa!
Svo er boðorðið skýrt þannig í fræðunum
Hvað er það? Svar: Vér eigum umfram alt að óttast Guð og elska, og honum að treysta.
Gott og vel, það er biblíulegur og réttur boðskapur að við eigum að treysta Guði í öllum þeim erfiðleikum sem við getum ratað í. Og saga þessi nýtist sannarlega sem dæmi um þetta, ekki síst vegna þess að traust til Guðs er mikilvægt atriði í henni. En við skulum samt sem áður hafa það á hreinu að beinn tilgangur þessarar frásagnar er annar.
Þar að auki gretum við ekki lofað því, á grundvelli þessarar sögu, að Jesús muni skýla okkur frá öllum stormum lífsins, hvort sem það eru bókstaflegir stormar eða myndrænir. Lærisveinar Jesú upplifa nefnilega oft mótvind eða mótlægi og erfiði, og láta stundum líf sitt, bæði í venjulegum slysum, sjúkdómum og hamförum, af völdum ófsókna og árása eða jafnvel í skipsbrotum. Kirkjur geta fallið saman í jarðskjálftum og stormviðri, brunnið niður eða jafnvel verið eyðilagðar í árásum óvina hennar. Ef það á að finna tengingu, þá er hún sú að kirkjan og lærisveinar Krists þurfa að standa af sér marga storma, og ekki að Jesús muni alltaf bægja þeim frá.
Sú vinsæla hugsun að ekkert illt komi nokkru sinni fyrir lærisveina Jesú, á hvorki stuðning í Heilagri ritningu né í reynslu veruleikans. Þvert á móti er það klárlega loforð Krists að lærisveinar hans muni ganga gegnum þrengingar og erfiðleika, að heimurinn muni hata þá, að sumir verði fangelsaðir og að aðrir muni jafnvel láta lífið. (Matt 5:10-12; Luk 21:12-18; Joh 15:18-19)
Að stormar lífsins munu blása og hrista fley lærisveinanna, og geta þau jafnvel sokkið þegar þau fyllast af vatni.
II
II
En ef megin tilgangur sögunnar er ekki fólginn í þessu, í hverju er hann þá fólginn?
Í fyrsta lagi er ekki hægt að skilja tilganginn nema að maður fyrst trúi því að sagan sé sönn, og hafi raunverulega átt sér stað. Við nálgumst því þessa sögu í trausti þess að orð Guðs tali sannleikann, ekki bara í einvherri falinni merkingu eða dæmi, heldur í líka í sögulegri staðreynd þeirra atburða sem hún lýsir. Þar á eftir beinir okkur, síðasta versið í guðspjalli dagins, að merkingunni. Mennirnir í bátnum, þ.e. postularnir, spyrja hver annan:
“Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.”
Þetta er það sem raunverulega átti sér stað. Jesús gekk um borð í bátinn með lærisveinum sínum og lagðist á kodda aftur í skuti meðan lærisveinarnir réru yfir. Þetta kemur ekki beint fram í guðspjalli dagsins, en er að finna í sömu frásögn í Markúsar í Mark 4:35-41. Hana er líka að finna í Luk 8:22-25.
Meðan Jesú og lærisveinarnir voru úti á vatni varð svo mikið ofsaveður að bylgjurnar lögðust yfir bátinn.
Hugsaðu þér hvað þetta er óttaþrungið augnablik. Það hjálpar kannski að veðrið fyrir utan kapelluna í þessu augnabliki er vel í áttina.
Það var algert myrkur, enda varla nokkur lukt sem gat haldist brennandi í svona veðri. Það var alveg kolbrjálað veður. Jesú og lærisveinarnir voru úti á miðju vatni í opnum báti. Það komu stórar bylgjur sem lögðust yfir bátinn, þannig að hann verður nærri fullur af vatni. Sennilega þurftu allir að ausa af öllum lífs og sálar kröfum til að báturinn farist ekki, og það á meðan þeir líka þurftu að róa af öllum kröftum. Þetta var nefnilega árabátur.
Eða kannski hafa þeir ekki haft tíma til annars en að ausa. Og í öllu þessu liggur Jesús aftur í skuti og sefur vært.
Ég hef stundum hugsað að svefn Jesú vitnar um mann sem hafði gerfið allt. Þegar við lesum söguna í Markúsarguðspjalli kemur fram að Jesús hafði reynt að taka lærisveinana með á yfirgefinn stað til þess að þeir fegnju að hvílast. En mannfjöldinn fylgdi þeim, og Jesús sinnti þeim allan dag. Hann var gersamlga búinn með alla líkamlega orku. Þannig er hann fyrirmynd trúaðra, og þess má geta sérstaklega að hann er fyrirmynd hins kristna eiginmanns, sem allt gerir fyrir eiginkonu sína —> kirkjuna.
En samt sem áður getur enginn nema Jesús sofið í svona stormi. Það er fyrsta vísbendingin um það sem á að gerast. Jesús sefur, því hann hefur fulla stjórn á aðstæðunum.
Það skildu lærisveinar hans ekki. Fyrst hafa þeir sennilega fundið fyrir pirringi yfir því að hann var ekkert að hjálpa þeim, síðan hefur pirringurinn þróast yfir í hreina örvæntingu. Að lokum kemur svo að því að þeir vekja hann, þegar það er orðið augljóst og óumflýjanlegt að báturinn muni farast.
Herra bjarga þú!. Vér förumst!
Bjarga þú, eða Hósanna á hebresku.
Jesú vaknar, rís á fætur og spyr: “Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?” :-D Hugsið ykkur það!
Svo hastar hann á vindinn og vatnið og það verður strax blankandi logn.
Nú gæti einhver svarað mér: Sakki! Er þetta ekki sönnun þess sem frjálslyndu guðfræðingarnir halda fram, þ.e. að þetta sé bara goðsögn eða dæmisaga. Jesús talar við vindinn og vatnið eins og það væru lifandi verur, en við vitum auðvitað vel að svo er ekki. Vatn er bara vatn, og vindurinn er bara loft sem hreyfist til. Heitt loft, sem hefur háan þrýsting, færist yfir í kaldari svæði þar sem þrýsingurinn er lægri. Það er ekki hægt að skipa þeim fyrir, þeir eru bara afurð náttúrulögmálanna. Vindur og vatn hafa enga vitund, engan huga eða hugsun, engan vilja, engan tilgang með hegðun sinni. Þetta er bara afurð náttúrulögmálanna.
Og þeim sem spyr þannig, svara ég: Já, einmitt! Ekki bara er það alveg hárrétt að vindurinn og vatnið hafi enga vitund, heldur er það líka nauðsynleg forsenda í sögunni. Þetta snýst ekki um hvað vindurinn og vatnið geta gert, heldur hver sé mátturinn og valdið í orðum Jesú.
Því þetta er ekki í frysta skipti sem vindi og vatni er skipað fyrir í Biblíunni. Við þekkjum til dæmis söguna af spámanninum Jónasi. Þegar hann var úti á vatni, sendi Guð storm sem olli því að Jónasi var kastað fyrir borð, og þá lægði storminn. Við höfum heyrt söguna af Jórdanánni sem þornaði upp fyrir Ísraelsmönnum þegar þeir gengu yfir í fyrirheitna landið. Við höfum heyrt um Rauðahafið sem klofnaði í tvennt, Nóaflóðið sem fyllti alla jörðina.
Og jafnvel á undan því koma sjálf orð sköpunarinnar.
6 Guð sagði: "Verði festing milli vatnanna, og hún greini vötn frá vötnum." 7 Þá gjörði Guð festinguna og greindi vötnin, sem voru undir festingunni, frá þeim vötnum, sem voru yfir henni. Og það varð svo. 8 Og Guð kallaði festinguna himin. Það varð kveld og það varð morgunn, hinn annar dagur. 9 Guð sagði: "Safnist vötnin undir himninum í einn stað, svo að þurrlendið sjáist." Og það varð svo.
Röddin sem talar í sköpunarsögunni, og hinum sögunum, er hin sama og sú sem talar í bátnum á Galíleuvatni. Valdið er hið sama, og þá er ekki annað hægt en að vatnið og vindurinn bregðist við. Þetta er vald sem ekki á uppruna sinn í þessum heimi, heldur utan við hann. Því rödd Jesú og orð hans, er rödd og orð hins Þríeina, almáttuga Guðs.
Guðs sjálfur, klæddur holdi og blóði, fæddur sem maður, var í bát lærisveinanna. Það að hann svaf á púða í skuti bátsins breytti því ekki. Meðan hann var í bátnum gat báturinn ekki farist. Aðal atriðið er þetta: Hann hastaði á vindinn, sem enga vitund hefur, en hlýddi samt. Einungis sá sem fyrst skapaði og mótaði vatnið með orð sínu hefur þvílíkt vald.
Lærisveinarnir spurðu: Matt 8:27 “Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.” Það átti enn eftir að taka svolítinn tíma, en að lokum gátu lærisveinarnir svarað þessari spurningu þegar Jesús bað þá um það. Pétur talaði þá fyrir alla lærisveinana og sagði: Matt 16:16 “Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.”
Til þess er þessi frásögn í Nýja testamentinu. Til að kenna okkur þennan einfalda sannleika: Jesús frá Nasaret er Kristur, Drottinn, sonur hins lifanda Guðs! Þessi Kristur er sá Drottinn sem við trúum á og tryestum í lífi og í dauða.
Lokaorð
Lokaorð
Jesús hefur aldrei lofað okkur að við munum ekki lenda í erfiðleikum. Né heldur hefur hann heitið því erfiðleikarnir geti ekki unnið bug á okkur, og jafnvel bundið enda á líf okkar. En hann hefur lofað því að vera með þeim sem trúa á nafn hans, jafnvel í dauða þeirra.
Dýrð sé Guði, Föður og Syni og Heilögum Anda. Svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen.
Játum saman trú okkar.
Þakkarfórn: Heilagi Guð á himni og jörð (538)
Lokasálmur: Meðan, Jesús minn ég lifi (377)
Tilkynningar eftir messulok
Tilkynningar eftir messulok
